Færsluflokkur: Bloggar

Stutt umsögn um leikina við ÍR

Sælt veri fólkið,

Mig langar svona þegar ég hef tíma að setja hér inn öðru hverju smá umsögn um leikina okkar og eru leikirnir í dag gegn ÍR kjörin byrjun.

A-lið: ÍR-Haukar 6-1 (1-1)

Þetta var frábær leikur fyrir okkur að fá. Í þessum leik sáum við nefnilega bæði "andlit" liðsins ef svo má segja. Fyrri hálfleikurinn okkar mjög góður, spilið glæsilegt og færin fjölmörg. ÍR fékk nokkur hálffæri en Matta var ávalt vel á verði í markinu og tók það sem vörnin tók ekki. Allar að spila frábærlega. Jóhanna skoraði gott mark og liðið að láta boltann ganga vel sín í milli. Á síðustu sekúndum hálfleiksins meiddist Sæunn og vorum stelpurnar ekki alveg búnar að ná áttum þegar ÍR fékk sókn og jafnaði nánast á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks.

Í síðari hálfleik spiluðum við svo bara hreinlega illa, reyndum of mikið sem einstaklingar og gáfumst hálfpartinn upp við mótlætið. Niðurstaðan var að við fengum á okkur 5 mörk og skoruðum ekkert. En ég ætla þó að skjóta því aðeins að hér að það er mín skoðun sem þjálfara að maður sé ekki að spila til að ná í sem best úrslit (þó ég hefði viljað hafa þau betri í dag), sama hvað það kostar. Heldur til þess að leikmenn læri sem mest. Það er alveg öruggt að ef við hefðum ekki fært til og róterað í liðinu þá hefði þetta nú verið öðruvísi, einnig eins og þið sjáið erum við alltaf að reyna að spila boltanum út frá marki í stað þess að sparka langt, það "virkar" oft ekki jafn vel en þegar lengra út í fótboltann er komið verður þetta ómetanlegt veganesti fyrir stelpurnar.

Við verðum komin með flott fótboltalið fyrr en ykkur grunar. Leikurinn í dag var frábær lærdómur fyrir stelpurnar í honum sáu þær hversu vel getur gengið ef liðið vinnur saman sem heild og hins vegar hversu illa gengur ef maður tekur ekki við mótbyr og liðið hættir að gera þetta sem heild.

B-liðið. ÍR-Haukar 1-4 (1-2) Frábær leikur í alla staði hjá stelpunum í B-liðinu. Liðið vann vel saman frá fyrstu mínutu til hinnar síðustu og sáust flottir spilkaflar auk þess sem leikmenn völdu rétta tímann til þess að leika á andstæðinga sína og bjuggu þannig til fjölmörg færi.

Varnarlega var liðið mjög gott eiga allar stelpurnar mikið hrós fyrir hvað þær voru duglegar að hlaupa til baka eftir hverja einustu sókn. B-liðið getur svo sannarlega verið stolt af sínum leik. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg með markaskorara á hreinu en ég held að Guðríður hafi skorað 2, annað eftir gott einstaklingsframtak og hitt eftir frábært samspil innan liðsins. Unnur skoraði svo eitt mark þegar hún nýtti sér mistök markvarðar ÍR og skoraði af um 20 metra færi með skoti á lofti í autt markið. Eitt markanna var svo sjálfsmark.

Það er svo sem ekki mikið meir um þennan leik að segja eins og oft vill verða þegar hlutirnir ganga vel þá er einhvernvegin minna að tala um. Í stuttu máli sagt gerðu stelpurnar einfaldlega allt rétt, spiluðu vel saman, notuðu einstaklingsframtök á réttum tímum og hlupu nákvæmlega eins mikið og þær þurftu. Glæsileg frammistaða.


Leikir við ÍR

Sælar stelpur og sælir foreldrar, Á morgun eru leikir við ÍR. Við verðum með 2 lið en mér sýnist nú hægt og rólega stefna í að við förum að ná í 3 lið sem er frábært!

Mæting hjá A-liðinu er kl.16:30 upp á ÍR-völl (í neðra Breiðholti). Hjá B-liðinu er mæting kl.17:30 á sama stað. Allar í HAUKABÚNINGNUM SÍNUM!

A-liðið skipa: Matta, Sædís, Sæunn, Dagbjört Bjarna, Oddný, Anna, Ásthildur, Helga, Jóhanna og Ágústa. Munið mæting kl.16:30 á ÍR-völl.

B-liðið skipa: Bríet, Silja, Margrét, Guðríður, Dagbjört Freyja, Auður, Unnur, Rebekka, Allý, Edda og Saga. Munið mæting kl.17:30 á ÍR-völl.

Nú vona ég innilega að ég sé ekki að gleyma neinni en ef svo er hafið þá samband við mig í síma 8666812 og alls ekki taka því persónulega, því ég er rosalega gleyminn :(

Ég veit að það eru tvær sem ætla ekki að spila, Hófý sem er veik og Karen sem er nýbyrjuð hjá okkur og treystir sér eðlilega ekki alveg strax til að spila en hefur staðið sig mjög vel á sínum fyrstu tveimur æfingum!

Endilega setjið athugasemd við þessa frétt stelpur þegar þið sjáið þetta og segið hvort þið mætið eða mætið ekki! Og látið allar vita sem ekki hafa komist á æfingu undanfarið!

kv. Jónsi 


Dósasöfnun þriðjudaginn 8. jan

Sælir foreldrar

Ætlum að skella okkur í dósasöfnun n.k þriðjudag. Höfum fengið lánaðann bílskúrinn að Glitvöllum 15, heima hjá Silju Jenný til þess að telja dósirnar. Með hverri stelpu sem tekur þátt verður eitt foreldri/forráðamaður að mæta, EKKI er hægt að senda bara barn.
Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta, en auðvitað er þetta val hvers og eins. Ágóðanum er svo skipt jafnt á milli þeirra sem taka þátt. Ætlum að hittast að Glitvöllum 15 kl 17:00.

Endilega látið vita hvort þið takið þátt eða ekki í athugasemdum

Bestu kveðjur foreldraráð


Æfingar hefjast aftur á morgun!

Sælar stelpur og sælir foreldrar!

Á morgun, mánudaginn 7. janúar hefjast æfingar aftur hjá stelpunum. Nú er ég alfarið tekinn við flokknum og mun sjá einn um stelpurnar fram á vor en þá kemur hugsanlega einhver inn mér til aðstoðar.

Æfingatímarnir fram á vor eru sem hér segir:
Mánudagar kl.15:30
Miðvikudagar kl.15:30
Föstudagar kl.16:30

Allar æfingar eru á Ásvöllum og munið að þær falla aldrei niður!

En við sjáumst hress á morgun, ég minni stelpur og foreldra á dósasöfnun á þriðjudag og svo eigum við æfingaleiki fyrir bæði A- og B-lið á fimmtudaginn kl.17:00 uppi á ÍR velli!

kv. Jónsi


íþróttaviðurkenningar á Strandgötu föstudaginn 28.des kl.18.00

Á hverju ári veitir Hafnarfjarðarbær viðurkenningar fyrir íslandsmeistaratitla á árinu sem er að líða. Í ár urðum við í 5.flokki kvenna Haukar Íslandsmeistarar innanhúss, og það á að veita þeim sem voru í liðinu viðurkenningu og það eru enn 2 stelpur sem eru enn í flokknum Matthildur og Sæunn þið eigið að mæta á Strandgötuna kl.18.00. á morgun.föstudaginn 28.des. Ég mun alla vega vera þar og tek á móti ykkur, Þið verðið að mæta vel merktar í Haukagöllunum


Álftanes kemur í heimsókn á miðvikudag

Sælar stelpur og sælir foreldrar!

Á miðvikudag ætlar Álftanes að koma í heimsókn til okkar á Ásvelli og spila við okkur í A- og B-liðum.

Stelpurnar eiga að vera klæddar í rauða peysu en það þarf ekki endilega að vera keppnisbúningurinn, sér í lagi ef það er ískalt.

Mæting er kl.15:10 en leikirnir hefjast kl.15:30 og spilum við á tveimur völlum samtímis.

Það væri mjög gott ef þið mynduð skrá ykkur hér stelpur ef þið komið!

kv. Jónsi


Afhending fjáröflun

Sælir foreldrar..

Ætlum að afhenda vörur úr fjáröflun n.k miðvikudag kl 16:30 á Ásvöllum.

Bkv foreldraráð


Mæting kl.10:30 í Fífuna!

Sælar stelpur!

Fyrirgefið hvað þetta kemur seint en það er mæting kl.10:30 á morgun í Fífuna :)

kv. Jónsi 


Æfingaleikur við Breiðablik á sunnudag (25. nóv) kl.11

Sæl öll,

Á sunnudag erum við svo heppin að komast aðeins inn í hlýjuna. Það eru Blikastelpur sem ætla að hýsa okkur og spila við okkur leik um kl.11:00 á sunnudagsmorgun. 

Það væri gott að vita hverjar komast og þá eiginlega frekar hverjar komast ekki á sunnudag. Við spilum í 2-3 liðum og reynum að koma því þannig fyrir að sem flestar fái að spreyta sig!

kv. Jónsi


4.flokks leikur

Sælar stelpur,

Helga og Jói, þjálfarar 5.flokks kvenna voru að biðja mig um að senda nokkrar stelpur tilað spila með 4.flokki gegn Breiðablik í Fífunni á laugardag. Leikurinn er kl.15:20 en mæting kl.14:35.

Ég ætlaði að þessu sinni að biðja Sæunni, Sædísi, Oddnýju, Ásthildi og Önnu að mæta. Verið í keppnisbúningunum ykkar.

Stelpur/foreldrar, ef einhver sér þetta í tæka tíð gætuð þið þá bæði sent mér sms og svo beðið stelpuna ykkar að gera allt sem hægt er til að ná í hinar stelpurnar því ég hef svo fá netföng og/eða símanúmer!

Annars er svo bara æfing að venju kl.12 á sunndag :)

kveðja, Jónsi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband