Færsluflokkur: Bloggar

LEIK FRESTAÐ VEGNA SNJÓS Á VELLINUM


Fresta verður leikjunum á móti Aftureldingu vegna sjós á vellinum

þið sem áttuð að mæta í leikina mætið kl 11.20 á æfingu

kv

Þjálfarar


Æfingin í dag (föstudag)


Það verður inniæfing í dag, þar sem veðrið er ekki gott
ykkur er frjálst að mæta
Kristján Arnar verður á svæðinu og fer með ykkur í skemmtilega leiki

kv

Þjálfarar


Leikir við Aftureldingu laugardaginn 10 mars (Breyting)

hæhæ

Framundan eru fyrstu leikirnir hjá A og B liðunum í Faxaflóamótinu og munu stelpurnar úr Aftureldingu koma í heimsókn á Ásvelli. Mæting er hjá okkur kl 11:20 og leikirnir byrja kl 12:00

Í A-liði eru: Matta, Alex J, Alex Líf, Svava, Thelma Ragn, Sæunn, Elín, Þórdís E 

Í b-liði eru: Sigrún Birna, Oddný, Jóhanna, Sædís, Sara Dögg, Wiktoría, Silja, Agnes, Elísa Eir

Það er æfing hjá hinum kl 11:00

 

kv

Þjálfarar 

 


Fjáröflun

Þá er komið að fjáröflun 5fl kvk. Eftirfarandi er í boði:

Kólus Páskaegg 900 gr. á kr. 3000, þar af fer 900 kr. inn á reikning stelpnanna.

Kólus Boltaegg 900 gr. á kr. 3000, þar af fer 800 kr. inn á reikning stelpanna.

Góu lakkrís 600 gr. á kr. 1000, þar af fer 500 kr. inn á reikning stelpanna.

Góu hlaup  600 gr. á kr. 1000, þar af fer 500 kr. inn á reikning stelpanna.

Vestfirskur harðfiskur 200 gr. á kr.1500, þar af fer 500 kr. inn á reikning stelpnanna.

Það þarf að ganga frá pöntun í síðasta lagi föstudaginn 9. mars með því að senda tölvupóst til Lizy á netfangið:  hje1@simnet.is.Koma þarf fram hvað keypt er, magn, heildarupphæð og nafn á stelpu. Dæmi:

Nafn

5 páskaegg kr. 15000 + 2 boltaegg  kr. 6000 + 3 lakkrís kr. 3000 + 4 hlaup kr. 4000 + 3 harðfisk kr. 4500 = Samtals kr.  32.500

Síðan látum við vita hvenær þarf að borga, en það þarf að gera áður en vörur eru sóttar.ALLAR stelpurnar verða að eiga Klassa-reikning í Landsbankanum í Hafnarfirði (fjáröflunarreikningur Hauka), ef ekki, verðið þið að stofna slíkan reikning og mikilvægt er að ganga frá því sem allra fyrst svo hægt sé að ganga frá söluhagnaðinum/fjáröfluninni.

Fyrir hönd foreldrafélagsins

Lizy


Stelpur 5.flokkur A

Stelpur í A þið verðið að hafa fótboltafötin ykkar í bakpoka inni í rútunni eða vera í þeim innanundir, Því fyrsti leikurinn hjá ykkur er kl. 15.30 og við fáum ekki að fara inn í skólann þar sem við gistum fyrr en 15.30.

Kv farastjórar.


Goðamótið - upplýsingar

Nú er komið að því, fyrsta mót ársins (-:.
Það er mæting á Ásvelli á morgun föstudag kl. 07:40 og lagt af stað kl. 08:00.

Það sem þarf að hafa meðferðis er:
Dýna, sæng/svefnpoki, koddi, lak, tannbursti, tannkrem, keppnisbúningur, TAKKASKÓR,LEGGHLÍFAR, fótboltasokkar (helst allavega tvö pör), HLÝ FÖT (það er kalt í Boganum), sundföt, handklæði sundgleraugu (fyrir þær sem vilja), sundpoka og vatnsbrúsa.

5.FLOKKUR A- OG B-LIÐ ÞURFA AÐ HAFA KEPPNISBÚNING OG TAKKASKÓ UPPI VIÐ ÞAR SEM VIÐ KOMUMST EKKI INN Í SKÓLANN FYRR EN KL. 15:30.

Það er líka gaman að hafa meðferðis Haukatattoo og litlar teygjur ef eitthvert foreldri fær fiðring og vill flétta (-:.

Leyfilegt er að taka síma, rafmagnstæki og spil með en þau eru á eigin ábyrgð.

Við viljum biðja foreldra að nesta stelpurnar í rútuna. Endilega hafið í huga að hafa nestið hollt og gott eins t.d. ávexti og grænmeti, samloku eða eitthvað slík. Það má líka koma með Corny en sælgæti og gos er ekki í boði. Þær fá heita máltíð á leiðinni því við stoppum í Staðarskála og fáum hakk og spaghetti.

Þeir foreldrar sem eru á staðnum - ekki taka stelpurnar úr prógramminu því það er stíft prógramm hjá þeim alla helgina og þjálfarar vilja að þær verði með allan tímann. Stelpurnar borða allar með sínum hópi, það er nóg matur þannig að foreldrar þurfa ekki að fæða börnin aukalega.

Fararstjórar og þeirra símanúmer:
Ósk 661-7433
Sveindís 699-6948
Lizy 847-3799
Bjössi 660-3423
Ævar 863-7188
Kristín 840-4005

Við erum með allan hópinn saman. Verið alveg óhrædd við að hringja í okkur. Endilega látið okkur vita ef það er eitthvað sem við getum hjálpað með og líka ef það er líkleg heimþrá, lyf o.s.frv.

Við erum með dýrmætan farm og gerum okkar besta í því að hugsa vel um alla (-:.

Haukakveðja, fararstjórar


Liðin á Goðamótinu

hæhæ stelpur Við förum með 3 lið á goðamótið sem er næstu helgi.

A-lið: K.H, Alex Líf, Alex j, Svava, Thelma R, Þórdís, Elín, (sæunn???)

B-lið: K.H, Sara D, Oddný, Elísa Eir, Wiktoría, Rakel, Guðný, (Silja???)

C-lið: Sigrún, Elísabet, Árdís, Helga Rós. Thelma Rut, Birgitta Rún, Saga Líf, Ásthildur, Edda Sóley.

hérna er svo leikjaplanið http://godamot.blog.is/users/73/godamot/files/leikjaplan_5_0.pdf

ÁFRAM HAUKAR

Koma í Rauðu í rútuna

 kv

 Kristján-ar 

 


Greiðsla vegna Goðamótsins á Akureyri helgina 2-4 mars

Nú er komið að greiðslu vegna Goðamótsins á Akureyri og greiða þarf í síðasta lagi á miðvikudag

Verð 19.500 með rútu báðar leiðir

Verð 16.500 með rútu aðra leið

Verð 13.500 ekki með rútu

  

Vinsamlegast leggið inn á reikning 0162-26-103928 kt. 080576-3829 og sendið kvittun á netfangið dianao@islandsbanki.is með nafni barns í skýringu.

 

Það á að leggja af stað kl 8.30 en vitum ekki ennþá hvenær komið verður heim, erum ekki búin að sjá leikjaplanið.

  

Kveðja

f.h foreldraráðsins

Díana ( mamma Alexöndru Lífar)


Goðamót Rúta

Sæl öll

Það eru 18 stelpur úr 5fl búnar að skrá sig í rútuna til Akureyrar: Ásthildur, Thelma, Helga Rós, Edda Sóley, Elísabet Ósk, Árdís Gía, Wiktoria, Katrín, Oddný, Alexandra Líf, Elín, Thelma Rut, Guðný Ósk, Alexandra J, Rakel Ósk, Saga Líf, Sigrún Birna og Birgitta.
Elísa Eyr verður samferða í rútunni til Akureyrar og Sara Dögg kemur með okkur heim.

Fararstjórar eru Sveindís, Ósk, Bjössi, Ævar,  Lizy og Kristín

Er einhver sem ekki er á listanum en ætlar með í rútunni? Eru einhverjir foreldrar sem einnig vilja koma með? Það eru ennþá laus pláss, en við verðum að fá að vita það
í síðasta lagi á morgun, mánudag. Því fleiri sem koma með, þeim mun lægri verður kostnaðurinn á hvern og einn. Á morgun setjum við reikningsnúmerið og upphæðina inn á bloggið, en sendum einnig með tölvupósti.

Fyrir hönd foreldafélagsins
Lizy (mamma Katrínar)

Gjaldkeri óskast :)

Kæru foreldrar

Er ekki einhver frábær mamma eða pabbi sem vill vera með okkur í foreldrastjórn 5fl kvk og taka að sér að vera gjaldkeri :)

Endilega látið vita hér á blogginu eða á netfangið mitt hje1@simnet.is

Kær kveðja Lizy (mamma Katrínar)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband