Nú er komið að því, fyrsta mót ársins (-:.
Það er mæting á Ásvelli á morgun föstudag kl. 07:40 og lagt af stað kl. 08:00.
Það sem þarf að hafa meðferðis er:
Dýna, sæng/svefnpoki, koddi, lak, tannbursti, tannkrem, keppnisbúningur, TAKKASKÓR,LEGGHLÍFAR, fótboltasokkar (helst allavega tvö pör), HLÝ FÖT (það er kalt í Boganum), sundföt, handklæði sundgleraugu (fyrir þær sem vilja), sundpoka og vatnsbrúsa.
5.FLOKKUR A- OG B-LIÐ ÞURFA AÐ HAFA KEPPNISBÚNING OG TAKKASKÓ UPPI VIÐ ÞAR SEM VIÐ KOMUMST EKKI INN Í SKÓLANN FYRR EN KL. 15:30.
Það er líka gaman að hafa meðferðis Haukatattoo og litlar teygjur ef eitthvert foreldri fær fiðring og vill flétta (-:.
Leyfilegt er að taka síma, rafmagnstæki og spil með en þau eru á eigin ábyrgð.
Við viljum biðja foreldra að nesta stelpurnar í rútuna. Endilega hafið í huga að hafa nestið hollt og gott eins t.d. ávexti og grænmeti, samloku eða eitthvað slík. Það má líka koma með Corny en sælgæti og gos er ekki í boði. Þær fá heita máltíð á leiðinni því við stoppum í Staðarskála og fáum hakk og spaghetti.
Þeir foreldrar sem eru á staðnum - ekki taka stelpurnar úr prógramminu því það er stíft prógramm hjá þeim alla helgina og þjálfarar vilja að þær verði með allan tímann. Stelpurnar borða allar með sínum hópi, það er nóg matur þannig að foreldrar þurfa ekki að fæða börnin aukalega.
Fararstjórar og þeirra símanúmer:
Ósk 661-7433
Sveindís 699-6948
Lizy 847-3799
Bjössi 660-3423
Ævar 863-7188
Kristín 840-4005
Við erum með allan hópinn saman. Verið alveg óhrædd við að hringja í okkur. Endilega látið okkur vita ef það er eitthvað sem við getum hjálpað með og líka ef það er líkleg heimþrá, lyf o.s.frv.
Við erum með dýrmætan farm og gerum okkar besta í því að hugsa vel um alla (-:.
Haukakveðja, fararstjórar
Flokkur: Bloggar | 1.3.2012 | 11:18 (breytt kl. 16:09) | Facebook
Athugasemdir
Gangi ykkur vel Haukastelpur þið eruð flottar.
Áfram Haukar
Kveðja Særún(mamma Þórdísar Elvu:)
Særún. (IP-tala skráð) 1.3.2012 kl. 15:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.