Landsbanka mótið 2012
Kostnaður við Landsbankamóti er 11.500 kr. (9000 mótsgjald, og 2500 í nesti). Millifæra þarf í síðasta lagi mánudaginn 18. Júní inn á reikning 0162-26-103928, kt. 080576-3829. Búið er að senda í tölvupósti hvað hver stúlka á mikið inni á fjáröflunarreikningi og geta foreldrar dregið þá fjárhæð frá kostnaðinum. Vinsamlegast setjið nafn barns í skýringu og sendið kvittun á dianao@islandsbanki.is
Þær sem voru með í fjáröflun en eiga ekki reikning, þá verða foreldrar að fara í Landsbankann í Hafnarfirði og stofna reikning.
Á Sauðárkróki hittumst við í þeim skóla sem stelpurnar gista á (ekki er komið á hreint hvaða skóli) á föstudagskvöld kl. 21.00, foreldrar og stúlkur. Foreldrar fara saman yfir skipulag laugardagsins og stúkurnar fá kvöldhressingu fyrir háttinn.
Eins og staðan er núna erum við með 2 lið og eru komnir liðstjórar fyrir bæði liðin. En auðvitað hjálpast allir foreldrar sem eru á staðnum við það sem til fellur.
Það sem þarf að hafa meðferðis er:
Dýna, sæng/svefnpoki, koddi, lak, tannbursti, tannkrem, keppnisbúningur, TAKKASKÓR,LEGGHLÍFAR, fótboltasokkar (helst allavega tvö pör), HLÝ FÖT , sundföt, handklæði sundgleraugu (fyrir þær sem vilja), sundpoka og vatnsbrúsa.
Leyfilegt er að taka síma, rafmagnstæki og spil með en þau eru á eigin ábyrgð.
Það verður morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur og þess á milli er nesti í boði, ávextir gulrætur, heitt kakó, brauð (líka grillað) og heimabakað af öllu tagi ;) og vatn.
Orkudrykkir eru ekki leyfðir.
Á laugardagskvöldi er kvöldvaka og þá fá þær smá sælgæti og snakk. Þær eiga ekki að vera með eigið nesti, drykki, sælgæti, né pening.
Það fara einhverjir foreldrar á miðvikudag eða fimmtudag og ætla þau að reyna að taka frá tjaldstæði fyrir Haukana, vonum að við getum öll tjaldað saman. Endilega setjið í komment hvernig þið ætlið að gista (tjald, tjaldvagn/fellihýsi, húsbíll o.frv), til að við getum áætlað plássið sem við þurfum að láta taka frá. Skemmtilegast ef allir eru saman.
Dagskráin er ekki enn komin, en þið getið fylgst með á http://www.tindastoll.is/index.php?pid=1437.
Kv. foreldrastjórn
Athugasemdir
Verðum á húsbíl
bjössi (IP-tala skráð) 16.6.2012 kl. 10:28
en hverning eru liðin?????
sara (IP-tala skráð) 16.6.2012 kl. 17:51
Tjaldi !
Thelma Rut (IP-tala skráð) 16.6.2012 kl. 19:17
við verðum í hústjaldi/stóru tjaldi
Svava Ósk (IP-tala skráð) 16.6.2012 kl. 22:23
Mamma og pabbi verða í tjaldvagni
Thelma Ragn (IP-tala skráð) 17.6.2012 kl. 01:44
við verðum með fellihýsi
Alexandra Líf (IP-tala skráð) 17.6.2012 kl. 15:58
Við verðum í tjaldvagni:)
Eir (IP-tala skráð) 17.6.2012 kl. 19:29
Við erum með fellihýsi
Helga Rún (IP-tala skráð) 17.6.2012 kl. 22:50
Mamma og pabbi verða með fellihýsi.
Birgitta og Steinunn (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 07:43
Fjölskyldan mín verður í tjaldvagni.
Ásthildur Rós (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 09:14
fellihýsi
agnes (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 18:03
fellihýsi
Sveindís (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 23:00
hvað verðum við með mörg lið
helga (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 23:06
HVERNING ERU LIÐIN Á SAUÐAKRÓKSMÓTTNU
???? (IP-tala skráð) 19.6.2012 kl. 08:57
Fjölskyldan okkar verður í fellihýsi :D
edda soley og helga ros (IP-tala skráð) 19.6.2012 kl. 10:58
Við erum með fellihýsi
Agnes Tinna (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 11:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.