Sælt veri fólkið,
Mig langar svona þegar ég hef tíma að setja hér inn öðru hverju smá umsögn um leikina okkar og eru leikirnir í dag gegn ÍR kjörin byrjun.
A-lið: ÍR-Haukar 6-1 (1-1)
Þetta var frábær leikur fyrir okkur að fá. Í þessum leik sáum við nefnilega bæði "andlit" liðsins ef svo má segja. Fyrri hálfleikurinn okkar mjög góður, spilið glæsilegt og færin fjölmörg. ÍR fékk nokkur hálffæri en Matta var ávalt vel á verði í markinu og tók það sem vörnin tók ekki. Allar að spila frábærlega. Jóhanna skoraði gott mark og liðið að láta boltann ganga vel sín í milli. Á síðustu sekúndum hálfleiksins meiddist Sæunn og vorum stelpurnar ekki alveg búnar að ná áttum þegar ÍR fékk sókn og jafnaði nánast á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks.
Í síðari hálfleik spiluðum við svo bara hreinlega illa, reyndum of mikið sem einstaklingar og gáfumst hálfpartinn upp við mótlætið. Niðurstaðan var að við fengum á okkur 5 mörk og skoruðum ekkert. En ég ætla þó að skjóta því aðeins að hér að það er mín skoðun sem þjálfara að maður sé ekki að spila til að ná í sem best úrslit (þó ég hefði viljað hafa þau betri í dag), sama hvað það kostar. Heldur til þess að leikmenn læri sem mest. Það er alveg öruggt að ef við hefðum ekki fært til og róterað í liðinu þá hefði þetta nú verið öðruvísi, einnig eins og þið sjáið erum við alltaf að reyna að spila boltanum út frá marki í stað þess að sparka langt, það "virkar" oft ekki jafn vel en þegar lengra út í fótboltann er komið verður þetta ómetanlegt veganesti fyrir stelpurnar.
Við verðum komin með flott fótboltalið fyrr en ykkur grunar. Leikurinn í dag var frábær lærdómur fyrir stelpurnar í honum sáu þær hversu vel getur gengið ef liðið vinnur saman sem heild og hins vegar hversu illa gengur ef maður tekur ekki við mótbyr og liðið hættir að gera þetta sem heild.
B-liðið. ÍR-Haukar 1-4 (1-2) Frábær leikur í alla staði hjá stelpunum í B-liðinu. Liðið vann vel saman frá fyrstu mínutu til hinnar síðustu og sáust flottir spilkaflar auk þess sem leikmenn völdu rétta tímann til þess að leika á andstæðinga sína og bjuggu þannig til fjölmörg færi.
Varnarlega var liðið mjög gott eiga allar stelpurnar mikið hrós fyrir hvað þær voru duglegar að hlaupa til baka eftir hverja einustu sókn. B-liðið getur svo sannarlega verið stolt af sínum leik. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg með markaskorara á hreinu en ég held að Guðríður hafi skorað 2, annað eftir gott einstaklingsframtak og hitt eftir frábært samspil innan liðsins. Unnur skoraði svo eitt mark þegar hún nýtti sér mistök markvarðar ÍR og skoraði af um 20 metra færi með skoti á lofti í autt markið. Eitt markanna var svo sjálfsmark.
Það er svo sem ekki mikið meir um þennan leik að segja eins og oft vill verða þegar hlutirnir ganga vel þá er einhvernvegin minna að tala um. Í stuttu máli sagt gerðu stelpurnar einfaldlega allt rétt, spiluðu vel saman, notuðu einstaklingsframtök á réttum tímum og hlupu nákvæmlega eins mikið og þær þurftu. Glæsileg frammistaða.
Athugasemdir
Kemst ekki dag(mánudag) er lasin.. :(
Dagbjört Freyja (IP-tala skráð) 14.1.2013 kl. 12:31
Èg kemst ekki í dag er veik :-(
Saga (IP-tala skráð) 14.1.2013 kl. 13:06
Jóhanna Birna kemst ekki á æfingu í dag (mánudag).
Jóhanna Birna (IP-tala skráð) 14.1.2013 kl. 14:51
Ég komst ekki á æfingu í dag.
Helga Rún (IP-tala skráð) 14.1.2013 kl. 21:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.