Kæru foreldrar/forráðmenn!

Á miðvikudaginn 14. nóvember var haldin foreldrafundur og þar var farið yfir stóru mótin sem Haukarnir ætla að mæta á. Þar var ákveðið að stefna á Goðamótið 1.-3. mars á Akureyri. Við fórum á það í mars síðastliðnum og var það mjög skemmtilegt mót. Svo verður farið á Pæjumótið 13.-15. júní í Vestmannaeyjum sem er stæðsta mótið fyrir 5. flokkinn og það hefur heyrst að það sé mikil spenna í stelpunum að fara þangað. Við látum ykkur vita hvenær er hægt að panta í Herjólf fyrir þá foreldra sem stefna á að koma á einkabílum út í eyjar. Sá gluggi opnar í janúar. Svo verður auðvitað farið á Símamótið 12.-15. júlí.

Svo að núna ætlum við að halda eina fjáröflun og ættu öll að vera búin að fá tölvupóst frá Hlyn, helgai2@simnet.is, endilega sendið honum póst ef þið hafið ekki fengið upplýsingar um fjáröflunina. Ekki verður send blöð heim með stelpunum, heldur prentið þið blöðin út.

Svo er ætlunin að safna gosflöskum eftir jól og þá er ætlunin að allar mæti og safni og þær stelpur sem koma fá ágóðanum skipt á milli sín og vonandi koma nú allar og safni alveg fulltSmile Við látum vita hvenær þetta verður.

Með kveðju, stjórnin.


Foreldra/forráðamannafundur kl.17 á miðvikudag

Sælir foreldrar/forráðamenn,

Það verður foreldrafundur vegna 5 flokks kvenna í knattspyrnu vegna ferða og fjáraflanna vegna þeirra.

Fundurinn verður á Ásvöllum kl:17:00 á miðvikudag 14.11

Fyrirhugaðar ferðir á mót í vetur og sumar:

Goðamót Akureyri 1-3 mars 2013
Pæjumót TM og ÍBV í Vestmannaeyjum. áætlað 12-15 júní 2013
Símmótið.áætlað 11-14 júlí 2013

kveðja,

Foreldraráð 5 flokks kvenna


Einkunn á mánudagsæfingu 12.11.2012

Sælar stelpur, Ég ætla bara að hafa einkuna einfalda í dag, en svo mun ég reyna mitt besta til að koma reglulega með ítarlegar einkunnir eins og ég byrjaði á fyrr í haust.Æfingin var í stuttu máli sagt mjög góð og sérstaklega miðað við aðstæður. Þið voruð mjög fljótar að koma ykkur að verki, hlustuðuð vel og gerðuð ykkar besta.

Það eina sem hef út á að setja var að við vorum svolítið lengi að koma okkur í gang í spilinu af því sumar voru ekki að leggja sig fram til að byrja með en svo lagaðist það. Þið voruð mjög nálægt því að fá 10 í dag en fáið 9 í þetta skipti sem er að ég held besta einkunin hingað til :)

kv. Jónsi 


Grindavík (uppfært)

Sæl öll, Fyrir ykkur sem hafið ekki séð liðin þá eru þau hér í næstu frétt að neðan :)

Ég ætlaði bara að ítreka það að mæting er kl.10:15 til Grindavíkur í fótboltahúsið þar sem er við hlið aðalvallarins. A-liðið mætir á laugardegi og B-liðið á sunnudegi.

Dagskrá mótsins hjá A-liðinu, smellið hér: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=28663

Dagskrá mótsins hjá B-liðinu, smellið hér: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=28683

Eins og ég sagði í fréttinni að neðan þá er um að gera að auglýsa ef þið eruð með laus sæti í bílnum ykkar á leið til Grindavíkur eða einnig ef stelpunni ykkar vantar far!

Ég fer sjálfur á bíl og það er ekkert mál að taka með 3 stelpur ef einhverri vantar far. 

Pabbi Sögu fer á bíl á sunnudagsmorgninum og getur tekið 3 með sér.

Mamma Önnu fer á bíl á laugardag og getur tekið 3 með sér. 

Um að gera að sameina í bíla og spara bensínið! 

Munið svo stelpur að hafa með ykkur búninga og verið nokkuð vel klæddar því ég er ekki viss um að þetta hús sé upphitað! 

Síminn hjá mér er 8666812 ef það eru einhver vandamál. 

kv. Jónsi 


Liðin á Faxaflóamóti (uppfært)

 Sælar stelpur og foreldrar! 

A-lið: Edda (ert þú ti í að vera í marki, allavega eitthvað smá?), Sædís, Hófý, Sæunn, Ásthildur, Oddný, Dagbjört Bjarna og Anna.

B-lið: Dagbjört Freyja, Helga, Silja, Saga, Unnur, Margrét, Guðríður. Okkur vantar einn mann hér!

Mig vantar svör frá, Elísabetu og Anný. Stelpur þið verðið að láta vita sem fyrst því annars þarf ég að boða úr 6.flokki fyrir ykkur því það vantar í B-liðið.

Þær sem komast ekki eru Matta, Jóhanna og Auður. Er það ekki örugglega rétt? 

Er ég nokkuð að gleyma einhverri, ef svo er ekki taka það persónulega, ég er mjög gleyminn!!!

Við ætlum að vera mætt um kl.10:15 í Grindavík báða dagana. A-liðið á laugardag, B-liðið á sunnudag.

Ég held að það sé sniðugt að sameina í bíla, foreldrar endilega látið vita hér ef þið getið keyrt eða ef dóttur ykkar vantar far. Ég get sjálfur farið á bíl og tekið 3-4 með mér. Stelpur spyrjið foreldra ykkar hvort þau geti keyrt!!

Endilega hringið í mig í síma 8666812 ef það er eitthvað sem þið viljið vita.


Liðin fyrir Faxaflóamótið koma inn í dag

Sælir foreldrar og stelpur!

Í dag koma inn liðin á Faxaflóamótinu! Mig vantar enn já eða nei frá allavega Guðríði, Elísabetu og Anný. Ég veit að Bríet og Matta komast ekki en hinar sem ég hef ekki talið upp eru klárar eftir því sem ég kemst næst.

Fylgist með hérna svona upp úr kl.6 í dag.

kv. Jónsi


Skráning á Faxaflóamót

Daginn :)

Skráið ykkur á faxaflóamót með því að setja komment/athugasemd við þessa frétt. A-liðið spilar laugardaginn 3.nóv og B-liðið sunnudaginn 4.nóv. Leikið er í Grindavík og eru leikirnir milli kl.11 og 16:00 báða dagana.

kv. Jónsi og Kristján


Faxaflóamót í Grindavík um næstu helgi

Sælir foreldrar/forráðamenn og stelpur,

Um næstu helgi er Faxaflóamót og fer það fram í Grindavík. A-liðið spilar milli ca. 11 og 16 á laugardag og B-liðið á sama tíma á sunnudeginum.

Liðin verða tilkynnt í síðasta lagi á miðvikudag, eða jafnvel í dag hér á síðunni. Það væri afar gott að vita það með minnst 2-3 daga fyrirvara ef einhver forföll eru.

kveðja, Jónsi og Kristján


Frítt fyrir 16 ára og yngri, á landsleikinn kl.18.30 Laugardalsvelli

Það er frítt á mikilvægasta fótboltaleik á Íslandi þónokkurn tíma fyrir 16 ára og yngri. Stelpurnar þurfa ekki miða á völlinn,bara að mæta. En ég fékk nokkra auka fullorðins miða og þeir eru í afgreiðslunni undir knd. kvenna landsleikur. Fyrstir koma fyrstir fá. Endilega fylgið stelpunum ykkar á þennan frábæra leik.

ÆFINGAGJÖLD – ÍTREKUN

Kæru forráðamenn

Þeir sem ekki hafa greitt (eða gert grein fyrir) æfingagjöld barna sinna fyrir 1.nóv. fá ekki að keppa fyrir hönd félagsins.

Sjá leiðbeiningar á haukar.is.

 

Með bestu kveðju, íþróttastjóri

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband