Mótinu hefur verið aflýst :(
Bloggar | 15.1.2014 | 21:50 (breytt 16.1.2014 kl. 16:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Farið verður á föstudagsmorgni og komið til baka á sunnudagskvöldi.
Til þess að geta skráð lið þá þurfum við að vita hversu margar ætla að vera með.
Kostnaður við ferðina verðum í kringum 23.000 á leikmann.
Það þarf að ganga frá kostnaði í síðasta lagi 3.febrúar annars hækkar gjaldið um 1000 hjá mótshöldurum.
Þegar nær dregur þá munum við henda út betri upplýsingum varðandi ferðina. Við munum þurfa 2 fararstjóra með hverju liði sem munu þurfa að gista á staðnum. Við megum ekki fara með fleiri foreldra en það á lið í gistingu. Gott er að foreldrar skoði hvort þeir komist eður ei í ferðina.
Skráning hefst NÚNA og lýkur laugardaginn 18.feb. eða á næsta laugardag - þá þurfa allar að vera búnar að skrá sig svo hægt sé að panta rútu og áætla kostnað. Vinsamlegast skráið ykkur hér að neðan - mikilvægt er að allar skrái sig hér en ekki á facebook.
Síðan viljum við biðja stelpurnar um að taka frá föstudaginn 24.jan. - nánar síðar.
Koma svo stelpur, allar að koma með - þetta verður bara gaman (-:.
Bloggar | 13.1.2014 | 21:31 (breytt kl. 21:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Minni á að það er æfing í Hraunvallaskóla í kvöld kl. 19.
Æfingataflan lítur svona út núna:
Sunnudagar: 11:15-12:15 - Ásvellir
Miðvikudagar: 17:00-18:15 - Ásvellir
Fimmtudagar: 19:00-20:00 - Hraunvallaskóli (inni, innanhússkór/strigaskór og léttur klæðnaður)
Föstudagar: 16:00-17:00 - Ásvellir
Kveðja,
þjálfarar.
Bloggar | 9.1.2014 | 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 2.1.2014 | 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þann 30. desember verður áramótaæfing inni á Ásvöllum. Sara Björk Gunnarsdóttir mætir og miðlar af reynslu sinni. Mæting er með innanhússföt og skó kl. 13. Vonumst til að sjá ykkur allar. Sjá nánar í auglýsingu hér í viðhengi. Endilega látið þetta berast sem víðast.
Gleðileg jól.
Þjálfarar.
Bloggar | 24.12.2013 | 11:17 (breytt kl. 11:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 17.12.2013 | 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hóhóhó.
Okkur bauðst gott tilboð í Laugarásbíó á myndina Frozen á miðvikudaginn kl. 18:00. Við fáum miðann á 1.000 krónur og innifalið í því er popp og kók. Það verður því bíóferð á miðvikudag í stað æfingar. Skráning er hér á blogginu eða Facebook fram á þriðjudagskvöld. Eitt foreldri er búið að gefa kost á sér að fara með stelpunum og spurning hvort það vanti ekki einn fullorðinn í viðbót. Hver er klár í slaginn?
Eftir þetta dettum við í jólafrí en byrjum svo aftur þann 8.janúar. Þá ætlum við að setja aukinn kraft í æfingarnar, allar ætla að mæta hundrað prósent, vera einbeittar og leggja sig fram svo við verðum tilbúnar á Goðamótið sem verður haldið á Akureyri þann 28.2.-2.3. (skráning á mótið hefst fljótlega)
Í jólafríinu hafa allir gott af því að hreyfa sig og hvet ég ykkur stelpur til þess að fara saman út á völl og spila fótbolta og æfa ykkur. Hér í viðhengi er listi með æfingum sem gott er að spreyta sig á (ef veðrið er vont er ég viss um að mömmu og pabba finnst ekkert mál að leyfa ykkur að æfa ykkur í stofunni heima)
Kveðja, þjálfarar.
Bloggar | 16.12.2013 | 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Í viðhengi er auglýsing frá Intersport en þar er boðið upp á jólaafslátt af Haukavörum fram að jólum :)
Síðasta æfing fyrir jól er á miðvikudag. Vonumst eftir þrusumætingu.
Kveðja,
þjálfarar.
Bloggar | 16.12.2013 | 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hóhóhó.
Nú styttist í jólin og þess vegna ætlum við að hafa jólaæfingu inni í Hraunvallaskóla á morgun, fimmtudag, kl. 19-20. Allar mega mæta með jólahúfur og í e-u rauðu (sem ætti að vera auðvelt fyrir Haukaskvísur) og að sjálfsögðu í jólaskapi. Í staðinn verður frí á sunnudaginn en fáar hafa verið að mæta undanfarna sunnudaga m.a. vegna jólaundirbúnings :)
En það verður líka æfing í dag, miðvikudag og á föstudaginn eins og venjulega.
Dagskrá fram að jólum er því þessi:
11.12. Æfing á Ásvöllum kl. 17-18:15
12.12. Jólaæfing í Hraunvallaskóla kl. 19-20
13.13. Æfing á Ásvöllum kl. 16:00-17:00
18.12. Æfing á Ásvöllum kl. 17-18:15
Jólafrí frá og með 20.12. - 4.1.
Kveðja,
þjálfarar.
Bloggar | 11.12.2013 | 15:14 (breytt 12.12.2013 kl. 20:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vonandi kemst þetta til skila þrátt fyrir stuttan fyrirvara en vegna mikils frosts sem spáð er áfram á morgun ætlum við að hafa æfingu inni í Hraunvallaskóla kl. 19-20 í kvöld en frí í staðinn á morgun, föstudag. Endilega látið boðin berast sem víðast.
Kveðja,
Helga.
Bloggar | 5.12.2013 | 14:12 (breytt kl. 14:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)