Færsluflokkur: Bloggar

Búið að fresta leikjunum við Selfoss

Sælar stelpur og foreldrar,

Núna rétt áðan var ákveðið að fresta leikjunum við Selfoss. Leikirnir munu fara fram einhvern þriðjudag í júní, þó ekki næsta þriðjudag. Ég mun láta vita með góðum fyrirvara um dagsetningu.

Ég biðst um leið afsökunar á hvað fyrirvarinn er lítill en vonandi sjá þetta allir í tæka tíð.

Látið þetta berast til allra sem áttu að keppa!

Ég minni svo á æfingu á morgun kl.15.00 Það verður fyrsta æfing sumarsins á náttúrulegu grasi :)

kv. Jónsi


Mikilvæg tilkynning! - breyttur mætingatími hjá b-liði

Sælar stelpur,

Á morgun er mæting hjá B-liðinu kl.16.30 eins og hjá A-liðinu. Ekki kl.17.20 eins og ég sagði í dag. Báðir leikirnir verða spilaðir samtímis. Látið þetta berast ykkar í milli svo allar mæti á réttum tíma. 


Leikir við Selfoss á morgun á Ásvöllum

Það er skammt stórra högga á milli, á morgun eiga a- og b-liðin leiki aftur og að þessu sinni á heimavelli gegn Selfoss. Liðin eru þau sömu og þau voru í gær.

Mæting á sama tíma hjá öllum. Mæting hjá A-liðinu er kl.16:30 en hjá B-liðinu kl.16.30

Allir eru að sjálfsögðu hvattir til að koma að horfa á!

kv. Jónsi 


Foreldrafundur!!

Foreldraráð hefur ákveðið að halda Pæjumótsfund miðvikudaginn 05.06.2013 kl.20:00. Farið verður yfir ferðatilhögun og ýmislegt sem tengist ferðinni til Vestmannaeyjar dagana 12.- 15. júní næstkomandi.

Það er mikilvægt að eitt foreldri/forráðamaður frá hverri stúlku, mæti á fundinn.

kveðja
Foreldraráð 5. flokks kvenna.

Leikir við Aftureldingu í Mosfellsbæ á morgun, þriðjudag

Sælar stelpur og foreldrar,

Á morgun, þriðjudag eiga A- og B-lið leik við Aftureldingu. Mæting er kl.16:00 upp í Mosfellsbæ, leikirnir hefjast samtímis kl.16:30.

Þær sem skipa A-liðið eru: Matta, Jóhanna, Sædís, Sæunn, Hófý, Anna, Dagbjört Bjarna, Ásthildur og Oddný.

B-liðið: Allý, Dagbjört Freyja, Guðríður, Silja, Unnur, Auður, Rebekka, Aníta og Ágústa. 

Því miður er ekki pláss fyrir fleiri að þessu sinni en sem betur fer erum við með 3 lið í Íslandsmóti í sumar og strax í næstu viku verða verkefni fyrir allan hópinn okkar.

Sjáumst á morgun stúlkur mína og ég sé ykkur svo allar á miðvikudag!

Það er gott að láta vita hér ef þið eruð með auka sæti í bílum upp í Mosó eða ef ykkur vantar far! 

kv. Jónsi 


Eyjar 2013

Foreldrar/forráðamenn

 

Nú er svo komið að það eru nokkuð margir sem eiga eftir að borga 17.000 kr sem stóðu eftir af gjaldinu.
Haft var samband við okkur frá Pæjumóti í morgun vegna greiðslu á keppnisgjöldum okkar stúlkna á Pæjumóti.
Við eigum að vera búin að greiða þessi keppnisgjöld 15.maí var lokafrestur.
Viljum við byðja ykkur að greiða þetta í dag svo við getum klárað þessa greiðslu.

Svo er það að okkur vantar að vita um nokkrar stelpur hvort þær séu með far í Landeyjarhöfn og til baka verðum að fá að vita þetta ekki seinna en um helgina svo við getum klárað skipulagningu okkar.

Kveðja 

Foreldraráð 5.fl.kvk.Haukum


Breytingar á leikjum

Sæl öll,

Eins og stelpurnar hafa eflaust skilað til foreldra sinna í gær þá er búið að færa leikina við Aftureldingu sem áttu að vera á morgun, föstudag yfir á þriðjudag. Þetta þíðir að það eru tveir leikir í næstu viku.

Leikjaplanið á næstunni er því svona:

Þriðjudagur, 28. maí A- og B-lið spila við Aftureldingu í Mosfellsbæ, bæði lið hefja leik kl.16:30 (þó það standi 17:00 á KSÍ.is) og er mæting kl.16.00 upp í Mosó

Fimmtudag 30. maí eiga A- og B-lið leiki við Selfoss á heimavelli okkar á Ásvöllum. A-liðið hefur leik kl.17:00 og B-liðið kl.17:50.

C-liðið hefur því miður ekki leik fyrr en 6. júní.

Annars minni ég á æfingu á morgun föstudag.

kv.Jónsi 


Skipulag ferða til Eyja og til baka.

Foreldrar/forráðamenn.

Nú þurfum við að fá að vita hverjir eru til í það að skutlast  austur í  Landeyjarhöfn, ef á þarf að halda. Og síðan hverjir fara alla leið til Eyja og verða með stelpunum á pæjumótinu.  

Þurfum að fá að vita hverjir eru með laust pláss í bílnum hjá sér, þá hve mörg laus pláss.

1. Get skutlast í landeyjarhöfn, ef á þarf að halda. 
2. Fer til Eyja á miðvikudeginum og verð allann tímann, er til aðstoðar og er með laust pláss fyrir_____.
3.Fer til baka á laugardeginum og er með laust pláss fyrir___. 

 Kveðja

 Foreldraráð 5 kvk. Haukum


Allir leikir sumarsins í Íslandmótinu (takið þessa daga frá)

Sælar stelpur og foreldrar,

Hér eru allir leikir sumarsins í 5.flokki kvenna í A-, B- og C-liðum í Íslansdmóti.

Til að sjá leikina, smellið HÉR 


Áríðandi tilkynning!

Þjálfari Gróttu hringdi í mig áðan og bað um að leikjunum yrði frestað (aftur) svo það eru ekki leikir á morgun (föstudag). Það þíðir hins vegar að það er æfing kl.15:00 á Ásvöllum á morgun. Látið berast!

kv. Jónsi

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband